Prófnefnd um réttindi til að verða héraðsdómslögmaður
Í lögum nr. 77/1998 um lögmenn segir í 7. gr.:
Umsækjandi um réttindi til að vera héraðsdómslögmaður verður að standast prófraun sem þriggja manna prófnefnd annast. Dómsmálaráðherra skipar nefndina til fjögurra ára í senn. Skal skipa einn nefndarmann eftir tilnefningu Lögmannafélags Íslands, annan samkvæmt tilnefningu lagadeildar Háskóla Íslands, en þann þriðja án tilnefningar og skal hann ekki vera starfandi lögmaður. Jafnmargir varamenn skulu skipaðir á sama hátt. Ráðherra skipar nefndinni formann, svo og varaformann úr röðum varamanna.
Aðalmenn
- Þorsteinn Davíðsson héraðsdómari, og jafnframt formaður, tilnefndur af dómsmálaráðherra,
- Berglind Svavarsdóttir lögmaður, tilnefnd af Lögmannafélagi Íslands,
- Kristinn Halldórsson landsréttardómari, tilnefndur af Dómarafélagi Íslands.
Varamenn
- Kristín Benediktsdóttir dósent, og jafnframt varaformaður, tilnefnd af dómsmálaráðherra,
- Reimar Pétursson lögmaður, tilnefndur af Lögmannafélagi Íslands,
- Sandra Baldvinsdóttir héraðsdómari, tilnefnd af Dómarafélagi Íslands.
Skipunartími nefndarinnar er frá og með 26. mars 2023 til og með 25. mars 2027 eða til fjögurra ára.