Starfshópur um framtíðarsýn heilbrigðisþjónustu fyrir börn sem búa við ofbeldi
Starfshópur sem á að móta framtíðarsýn í heilbrigðisþjónustu fyrir börn sem eru þolendur hvers kyns ofbeldis. Með hvers kyns ofbeldi er hér átt við til dæmis börn sem þolendur heimilisofbeldis, börn sem undirgangast umskurð á kynfærum og börn sem eru þolendur ofbeldis af hálfu annara barna.
Starfshópinn skipa
- Drífa Jónasdóttir, sérfræðingur í heilbrigðisráðuneytinu, formaður hópsins
- Hjalti Már Björnsson, bráðalæknir á Landspítala
- Gunnlaug Thorlacius, yfirfélagsráðgjafi á geðsviði Landspítala
- Dögg Hauksdóttir, framkvæmdastjóri Kvenna- og barnaþjónustu á Landspítala
- Valdís Ösp Jónsdóttir, hjúkrunarfræðingur á Sjúkrahúsinu á Akureyri
- Páll Ólafsson, framkvæmdastjóri farsældarsviðs Barna-og fjölskyldustofu
- Hlín Sæþórsdóttir, sérfræðingur hjá mennta- og barnamálaráðuneyti
- Sigurður Örn Magnússon, deildarstjóri hjá Barnavernd Reykjavíkur
- Helgi Valberg Jensson, yfirlögfræðingur hjá Ríkislögreglustjóra
- Andrea Valgeirsdóttir, lögfræðingur hjá Öryrkjabandalagi Íslands
Starfsmaður hópsins er Hrafnhildur Ýr Erlendsdóttir, sérfræðingur í heilbrigðisráðuneytinu.
Starfshópurinn er skipaður af heilbrigðisráðherra 9. janúar 2024 og skal skila niðurstöðum sínum fyrir 1. maí 2024.