Vinnuhópur um endurskoðun á mats- og greiðslukerfi hjúkrunarheimila
Vinnuhópur um endurskoðun á mats- og greiðslukerfi hjúkrunarheimila HRN22060120 / 04.51
Skipaður af heilbrigðisráðherra 19. ágúst 2022.
Í samræmi við yfirlýsingu heilbrigðisráðherra dags. 1. mars 2022 vegna samningaviðræðna um rekstur hjúkrunarheimila, kallaði ráðuneytið eftir fulltrúum frá embætti landlæknis, Sjúkratryggingum Íslands, Samtökum fyrirtækja í velferðarþjónustu og Sambandi íslenskra sveitarfélaga í vinnuhóp um endurskoðun á mats- og greiðslukerfi hjúkrunarheimila.
Hópnum er falið að skoða hvort gera eigi breytingar á núverandi mats- og greiðslukerfi sem mælir hjúkrunarþyngd og liggur til grundvallar greiðslum. Þá er hópnum jafnframt falið að skoða hvort tengja eigi greiðslur við gæðavísa í stað hjúkrunarþyngdar og leggja mat á nálgun um hvernig hægt er að mæta breyttum kröfum um gæði og þjónustu, m.a. m.t.t. samsetningar á starfsfólki hjúkrunarheimila.
Áfangaskýrslu verði skilað fyrir 1. desember 2022. Lokafrestur til að skila niðurstöðum vinnuhópsins er síðan 15. maí 2023.
Vinnuhópinn skipa
- Heiðbjört Ófeigsdóttir, tiln. af Sjúkratryggingum Íslands, formaður
- Elsa B. Friðfinnsdóttir, án tilnefningar
- Linda Garðarsdóttir, án tilnefningar
- Sigurjón Norberg Kjærnested, tiln. af Samtökum fyrirtækja í velferðarþjónustu
- Varamaður: María Fjóla Harðardóttir, tiln. af Samtökum fyrirtækja í velferðarþjónustu
- Lovísa Agnes Jónsdóttir, tiln. af embætti landlæknis
- Valgerður Freyja Ágústsdóttir, tiln. af Sambandi íslenskra sveitarfélaga
- Kristín Lára Ólafsdóttir, tiln. af Sjúkratryggingum Íslands, sem er jafnframt starfsamaður vinnuhópsins
Vinnuhópurinn er skipaður af heilbrigðisráðherra 19. ágúst 2022.