Um nefndina
(Samþykkt á fundi nefndarinnar 14. mars 2005)
1. Markmið
Stefnt er að því, sbr. erindisbréf, að afhenda forsætisráðherra fyrir 1. september 2006, eða í síðasta lagi í árslok 2006, frumvarp að breytingu á stjórnskipunarlögum ásamt greinargerð.
2. Vinnutilhögun
Það er keppikefli að tillögur nefndarinnar endurspegli þjóðarvilja. Nefndin mun því leitast við að stuðla að uppýstri umræðu meðal almennings um stjórnarskrárumbætur. Starfað verður fyrir opnum tjöldum, vinnugögn gerð aðgengileg almenningi, kallað eftir hugmyndum og áliti einstaklinga og félagasamtaka og hvatt til þátttöku sem flestra í starfinu. Í þessu skyni verða skipulagðir fundir og ráðstefnur um einstaka þætti stjórnarskrárinnar.
Stjórnarskrárnefnd mun njóta aðstoðar sérfræðinganefndar þeirrar sem skipuð hefur verið. Jafnframt verða settir á fót vinnuhópar innan nefndarinnar um einstök álitaefni eftir þörfum. Forsætisráðuneytið veitir ritaraþjónustu og sér um uppsetningu og viðhald heimasíðu.
3. Vinnuáfangar
1. þrep (febrúar - maí 2005)
Sérfræðinganefnd vinnur eftirtaldar greinargerðir:
- Sögulegt yfirlit yfir stjórnarskrárþróun á Íslandi frá 1874 til okkar daga. Rakið verði hvernig staðið hefur verið að breytingum og hvaða umræða hefur farið fram frá lýðveldisstofnun um þörf á umbótum.
- Skýringar við núgildandi stjórnarskrá og einstakar greinar hennar (þ.e. stutta lýsingu á inntaki og þýðingu hverrar greinar um sig, sagt frá dómaframkvæmd og hvort almenn samstaða sé um túlkun eða ef deilur, þá hverjar).
- Yfirlit yfir stjórnarskrárþróun í Evrópu frá stríðslokum til okkar daga. Eftir því sem efni eru til verði tekin dæmi af nýlega endurskoðuðum stjórnarskrám eins og í Finnlandi. Því verði svarað hvaða lærdóm megi draga af evrópskri stjórnarskrárþróun sem gagnist við endurskoðun íslensku stjórnarskrárinnar.
- Stutta lýsingu á mismunandi stjórnskipunarfyrirkomulagi hjá vestrænum lýðræðisríkjum.
2. þrep (júní - des. 2005)
Stjórnarskrárnefnd útbýr í samráði við sérfræðinganefnd vinnuskjal þar sem gefið yrði yfirlit yfir þau atriði í núverandi stjórnarskrá sem þarfnast endurskoðunar að mati nefndarinnar, hugmyndir settar fram um leiðir til úrbóta og spurningum varpað fram. Vinnuskjalið birt á heimasíðu nefndarinnar og rúmur frestur gefinn til að senda inn skriflegar athugasemdir. Lögð verður áhersla á víðtæka almenna umræðu um hugmyndir nefndarinnar.
Gerð verður samantekt um viðbrögð og hugmyndir sem vinnuskjal nefndarinnar vekur.
3. þrep (jan. - ágúst 2006)
Stjórnarskrárnefnd felur sérfræðinganefndinni að útfæra hugmyndir sínar í frumvarpsformi.
Sérfræðinganefndin skilar að því búnu inn fyrstu drögum.
Stjórnarskrárnefnd lætur í ljósi álit á frumvarpsdrögunum og biður sérfræðinganefndina að útbúa frumvarp ásamt greinargerð.
Frumvarpið ásamt greinargerð, með hugsanlegum lagfæringum stjórnarskrárnefndar, afhent forsætisráðherra.

