Fréttir
Lýðræði og vilji fólksins
Ráðstefna Stofnunar stjórnsýslufræða og stjórnmála í samvinnu við nefnd um endurskoðun stjórnarskrár lýðveldisins, þann 29. október kl. 11.00-14.00 í Öskju, náttúrufræðahúsi Háskóla Íslands. Ráðstefnan er öllum opin endurgjaldslaust.
Lýðræði og vilji fólksins: þjóðaratkvæðagreiðslur og áhrif þeirra
11.00 - 12.00 Hvers konar áhrif hafa þjóðaratkvæðagreiðslur á stjórnmál? “Policy effects of referendums”
Simon Hug er þekktur svissneskur stjórnmálafræðingur, sem hefur ritað um áhrif þjóðaratkvæðagreiðslna á stjórnmál, en tvær af hverju þremur þjóðaratkvæðagreiðslum í heiminum fara fram í Sviss. Hann er prófessor í stjórnmálafræði við Zürich háskóla og hefur rannsakað áhrif þjóðaratkvæðagreiðslna. Hann er ennfremur sérfræðingur á sviðum nýrra stjórnmálaflokka, áhrifa stjórnmálastofnana með sérstakri áherslu á þjóðaratkvæðagreiðslur og stofnanauppbyggingu sambandsríkja, ákvarðanatöku, átakalausna (conflict resolution), formlegra kenninga og rannsóknaraðferða. Sjá nánar hér að neðan.
12.00 - 13.00 Álitaefni tengd þjóðaratkvæðagreiðslum
Indriði H. Indriðason lektor í stjórnmálafræði: Einfalt mál, flókið val.
Svanborg Sigmarsdóttir stjórnmálafræðingur: Þolinmæði á tímum hraðans: mótverkandi kraftar íbúalýðræðis.
Þorlákur Karlsson deildarforseti H.R.: Undirskriftasafnanir: eru þær góð leið til að komast að skoðunum fólks?
Guðmundur Heiðar Frímannsson prófessor H.A.: Hef ég nokkra skynsamlega ástæðu til að kjósa? Um siðferði og stjórnmál.
Ólafur Þ. Harðarson prófessor H.Í.: Þjóðaratkvæði og þröskuldar. Á að setja sérstaka
þátttökuþröskulda í þjóðaratkvæðagreiðslum?
13.00 - 14.00 Hvað væri skynsamleg regla um þjóðaratkvæðagreiðslur á Íslandi?
Umræðupanell: Alþingismennirnir, sem allir sitja í stjórnarskrárnefndinni, Birgir Ármannsson, Jón Kristjánsson, Guðjón A. Kristjánsson, Steingrímur. J. Sigfússon og Össur Skarphéðinsson. Umræðustjóri Ólafur Þ. Stephensen aðstoðarritstjóri Morgunblaðsins.
Fundarstjóri: Helga Jónsdóttir lögfræðingur og forstöðumaður stjórnsýslusviðs Reykjavíkurborgar.
* * *
Simon Hug er prófessor í stjórnmálafræði við Zürich háskóla. Hann hefur rannsakað áhrif þjóðaratkvæðagreiðslna á stjórnmál en tvær af hverju þremur þjóðaratkvæðagreiðslum í heiminum fara fram í Sviss. Hann er ennfremur sérfræðingur á sviðum nýrra stjórnmálaflokka, áhrifa stjórnmálastofnanna með sérstakri áherslu á þjóðaratkvæðagreiðslur og stofnanauppbyggingu sambandsríkja, ákvarðanatöku, átakalausna (conflict resolution), formlegra kenninga og rannsóknaraðferða. Verk hans hafa birst víða, þ.á.m. í "Comparative Political Studies," "European Journal of Political Research," "European Union Politics," "International Organization," "Journal of Conflict Resolution," "Journal of Theoretical Politics," "Party Politics", "Political Analysis" og "Public Choice," o.fl.. Simon Hug er höfundur bókanna "Altering Party Systems" (Ann Arbor: University of Michigan Press, 2001), "Voices of Europe. Citizens, Referendums and European Integration" (Lanham: Rowman & Littlefield, 2002), meðhöfundur Stefano Bartolini og Daniele Caramani að "Political Parties and Party Systems. A Bibliographic Guide to the Literature on Parties and Party Systems in Europe since 1945" (London: Sage, 1998) og ritstýrði "Nouvelles valeurs et nouveaux clivages en Suisse" (Paris: L'Harmattan, 2002) ásamt Pascal Sciarini, "Preference Formation and European Constitution-Building" (London: Routledge, væntanleg 2006) ásamt Thomas König, og "Tax evasion, trust and state capacity" (Bern: Lang, væntanleg 2006) ásamt Nicolas Hayoz.
Simon Hug er í ritstjórn "Electoral Studies," "European Union Politics," og "Swiss Political Science Review."

