Fréttir

Ráđstefna 11. júní 2005 - góđar undirtektir félagasamtaka

18.5.2005

Frestur fyrir félagasamtök ađ skrá sig til formlegrar ţátttöku í ráđstefnu stjórnarskrárnefndar á Hótel Loftleiđum 11. júní nćstkomandi rann út 15. maí s.l. Eftirtalin félög hafa óskađ eftir ţví ađ taka til máls á ráđstefnunni og sum ţeirra hafa ţegar sent inn tillögur: Frjálshyggjufélagiđ, Hiđ íslenska félag áhugamanna um stjórnskipan, Landvernd, Mannréttindaskrifstofa Íslands, Mannvernd, Náttúruvaktin, Reykjavíkurakademían, Samband ungra sjálfstćđismanna, Samtök herstöđvaandstćđinga, Siđmennt, Skýrslutćknifélag Íslands, Undirbúningshópur kvenna um stjórnarskrárbreytingar, Ţjóđarhreyfingin og Öryrkjabandalag Íslands.

Stjórnarskrárnefnd kemur saman til fundar 1. júní nćstkomandi ţar sem lögđ verđur lokahönd á dagskrá ráđstefnunnar. Verđur dagskráin birt í byrjun júní og ţar mun koma fram niđurröđun félagasamtaka í málstofur og rćđutími sem ţau fá til umráđa.Tekiđ skal fram ađ ráđstefnan sjálf er öllum opin á međan húsrúm leyfir. Mćlst er til ţess ađ ţátttakendur skrái sig ekki síđar en 3. júní nćstkomandi. Rafrćn skráning er möguleg á heimasíđu stjórnarskrárnefndar, www.stjornarskra.is.