Fréttir

Stjórnarskrárnefnd kynnir vinnuáćtlun og opnar upplýsingabás í Ţjóđarbókhlöđu

18.3.2005

Stjórnarskrárnefnd efndi til fréttamannafundar í Ţjóđarbókhlöđunni 17. mars 2005 til ađ kynna nýsamţykkta vinnuáćtlun og opna upplýsingabás.

Fram kom í máli Jóns Kristjánssonar, heilbrigđisráđherra, formanns nefndarinnar, ađ nefndin hvetti til víđtćkrar umrćđu í ţjóđfélaginu um stjórnarskrána og breytingar á henni. Hyggst nefndin leggja sitt af mörkum til ţess ađ sú umrćđa geti byggst á greinargóđum upplýsingum um starf nefndarinnar, íslenska stjórnskipun og stjórnarskrárţróun í nágrannalöndum.

Í ţessu skyni var opnuđ heimasíđa á dögunum, stjórnarskrá.is ţar sem birtar eru upplýsingar um starf stjórnarskrárnefndar, ţar á međal fundargerđir, erindi og bréf sem berast, hlekkir á helstu heimasíđur sem máli skipta, og ýmislegt ítarefni sem til er á tölvutćku formi.

Sumt efni er ađ sjálfsögđu ekki til á tölvutćku formi, eins og bćkur, greinar úr tímaritum og skýrslur af ýmsu tagi. Ţess vegna er ţađ nefndinni ánćgjuefni ađ tilkynna ađ samkomulag hefur tekist viđ Landsbókasafn Íslands – Háskólabókasafn um ađ frátekinn verđi á safninu bás undir efni sem tengist stjórnarskrárendurskođuninni. Almenningi gefst ţannig kostur á ađgangi ađ öllum helstu gögnum sem stjórnarskrárnefnd og sérfrćđinganefnd, sem henni er til ađstođar, byggja starf sitt á. Opnunartími er rúmur, ţví ţessi hluti safnsins er opinn til klukkan 22 á kvöldin mánudaga til fimmtudaga og einnig hluta dags um helgar. Ţeir sem eiga ţess ekki kost ađ heimsćka Ţjóđarbókhlöđuna geta nálgast ţessi gögn međ millisafnaláni.