Fundargerđir

Fundargerđ 5. fundar stjórnarskrárnefndar

1.6.2005

Fundargerđ 5. fundar stjórnarskrárnefndar

1. Inngangur

Fundur var settur í Ţjóđmenningarhúsinu viđ Hverfisgötu í Reykjavík hinn 25. apríl 2005 klukkan 9 árdegis. Mćtt voru úr stjórnarskrárnefnd: Geir H. Haarde, Guđjón A. Kristjánsson, Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, Jón Kristjánsson (formađur), Jónína Bjartmarz og Ţorsteinn Pálsson. Ađrir voru forfallađir. Ţá voru einnig mćtt úr sérfrćđinganefnd um stjórnarskrána: Björg Thorarensen, Eiríkur Tómasson (formađur) og Gunnar Helgi Kristinsson. Kristján Andri Stefánsson hafđi bođađ forföll. Páll Ţórhallsson ritađi fundargerđ.

Lögđ var fram og samţykkt fundargerđ síđasta fundar.

2. Erindi sem borist hafa nefndinni

Lögđ voru fram og rćdd erindi sem hafa borist nefndinni frá Merđi Árnasyni alţingismanni og Pétri Sigurgeirssyni fyrrverandi biskup.

3. Undirbúningur ráđstefnu

Ritari gaf yfirlit yfir undirbúning ráđstefnu. Drög ađ dagskrá ásamt áskorun til félagasamtaka um ađ senda inn óskir um ţátttöku hefđu veriđ auglýst í dagblöđum. Ţá hefđi ýmsum félagasamtökum veriđ sent bréf sama efnis.

Fram komu athugasemdir viđ ađ háskólum skyldi hafa veriđ sent bréf ţví ţar vćri ekki um félagasamtök ađ rćđa. Af hálfu formanns var ţví svarađ til ađ innan háskólanna gćtu veriđ félög sem áhuga hefđu á ţátttöku í ráđstefnuni. Einnig komu fram nokkrar uppástungur um fleiri félög sem mćtti senda bréf.

Var ritara faliđ ađ senda út fleiri bréf í samrćmi viđ athugasemdir sem fram hefđu komiđ.

Ţá voru nefndarmenn minntir á ađ láta ritara vita í hvađa málstofum ţeir vildu sitja í pallborđi ţar sem ţeim gćfist fćri á ađ bregđast viđ hugmyndum félagasamtaka.

4. Skođanaskipti um einstök ákvćđi stjórnarskrárinnar

Formađur minnti á ađ ákveđiđ hefđi veriđ ađ taka frá heilan dag, 1. júní 2005, fyrir nćsta fund til ţess ađ gefa svigrúm fyrir rćkilega efnislega umrćđu. Lagđi hann til ađ sá fundur hćfist međ ţví ađ sérfrćđinganefndin kynnti sínar greinargerđir. Síđan yrđi fundarmönnum gefinn kostur á ađ viđra hugmyndir sínar um áhersluatriđi í endurskođunarvinnunni.

Fram kom ósk um ađ sérfrćđinganefndin sendi greinargerđir sínar til stjórnarskrárnefndarmanna í tćka tíđ fyrir fundinn ţannig ađ ráđrúm gćfist til ađ kynna sér efni ţeirra.

Ţá var einnig samţykkt ađ verja tíma á fundinum 1. júní 2005 til ađ rćđa form og uppbyggingu endurskođađrar stjórnarskrár.

5. Önnur mál

Önnur mál voru ekki rćdd.

6. Nćsti fundur

Nćsti fundur var ákveđinn miđvikudaginn 1. júní 2005 kl. 9-17 í Svartsengi. Ritari myndi senda út fundarbođ í tćka tíđ ásamt dagskrá.

Fleira var ekki rćtt og var fundi slitiđ kl. 10.15.